157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:17]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni hér fyrir sína ræðu. Í þessari ræðu kristallaðist kannski vandi umræðunnar hvað varðar þennan málaflokk. Við erum hér að ræða um búsetu- eða brottfararúrræði en hér er búið að fara um víðan völl. Það finnst mér þvæla umræðuna frá því máli sem hér er til umræðu.

Hv. þm. Sigmar Guðmundsson óskar hér eftir þverpólitískri umræðu og óskar eftir meiri sátt um þennan málaflokk sem varðar útlendinga og hælisleitendur. Ég tek heils hugar undir það. Því langar mig að rifja hér upp að í ágúst 2023 skrifaði formaður Viðreisnar bréf til þáverandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, þar sem núverandi utanríkisráðherra óskaði eftir þverpólitísku samtali um þennan málaflokk. Við því varð orðið. Þá var sú sem hér stendur dómsmálaráðherra og þá voru haldnir fundir og úr þeirri vinnu varð til heildarsýn í útlendingamálum og var samþykkt í ríkisstjórn 20. febrúar á síðasta ári af þeim þremur flokkum sem þá mynduðu ríkisstjórn. Þar voru 22 aðgerðir til að ná betri stjórn á málaflokknum. Af hverju í ósköpunum fara ekki núverandi ríkisstjórnarflokkar og sækja þessa heildarsýn og halda áfram þeirri vinnu og þar með yrði hún þverpólitísk? Þar með yrði sátt um þessa vinnu hér á Alþingi? Hér er talað eins og ekkert hafi verið gert. Þetta er óskiljanlegt, hv. þingmaður.