157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[19:30]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna. Auðvitað verðum við huga að öllu því sem snýr að börnum, alveg sama hvar þau eru staðsett þegar þau eru að koma hingað til lands; hvort sem þau eru að koma, hvort þau eru að bíða eftir úrlausn eða hvort þau eru komin í brottfararstöðina. Það þarf auðvitað að gæta alveg einstaklega vel að því og sjá til þess að þau fái alla þá aðstoð sem þau þurfa. Ég held að það sé enginn pólitískur ágreiningur um það að neinu leyti.

Mig langar samt aðeins að spinna þann þráð sem hv. þingmaður nefndi hér í fyrra andsvari fyrr í þessari umræðu þar sem voru uppi áhyggjur af því að álagið væri mest á ákveðnum stöðum á landinu þegar kemur að þessu. Ég tek alveg undir að þannig hafa málin þróast hér og þess vegna var ég líka að vísa til Noregs. Ég held að hv. þingmaður hljóti að vera sammála mér í því að okkur þótti, ef ég man rétt, öllum til fyrirmyndar hvernig Norðmenn stóðu að því að dreifa fólki meira um landið og gerðu það í miklu samráði og samtali við sveitarfélög víða um land.

Aftur varðandi þetta sem snýr að börnunum. Það hlýtur að vera metnaðarmál okkar, alveg sama hvort börnin eru að koma eða eru að bíða eftir því að fá úrlausn sinna mála eða eru í brottfararmiðstöðinni, að við hugum sérstaklega vel að þeim. Mér sýnist reyndar gert ráð fyrir því í þessu frumvarpi. Það er ekki gert ráð fyrir því að börn séu lengi í þessu tiltekna úrræði, auðvitað eru sett mörk á það. Það er talað um í greinargerðinni og í þessu máli að það þurfi að passa vel upp á að umhverfið sé manneskjulegt. Við skulum ekki gleyma því að þó að þetta sé íþyngjandi úrræði þá er þetta a.m.k. að bæta ákveðna stöðu. Áður var þetta þannig að foreldrarnir lentu mögulega í því að þurfa að sitja í (Forseti hringir.) fangelsi á meðan börnunum var komið fyrir annars staðar á meðan. Þarna fær þó a.m.k. fjölskyldan að vera saman. (Forseti hringir.) Þetta er vissulega íþyngjandi úrræði en betra heldur en það sem er í dag.