brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Þetta er ágætissamantekt hjá hv. þingmanni á öllum þessum hópum. Þetta eru orðnir svo margir hópar og svo er boðað í frumvarpinu sem liggur fyrir þinginu enn nýjan hóp sem er þessi hópur í umborinni dvöl. Þannig að þetta er ágætis tilefni, eins og ég sagði áðan, og tækifæri til þess að þingmenn setji sig aðeins inn í þennan málaflokk og átti sig á því hvað þetta er orðinn umfangsmikill, ef ég má sletta hérna, bransi í rauninni í kringum fólk sem er að koma hérna í alls konar stöðu og kemur sér í alls konar stöður sem það getur kallað á og krafist þjónustu og útgjalda frá íslenskum skattgreiðendum. Þetta er auðvitað ekki á vetur setjandi.
Ég vil síðan nefna það hérna líka að ég fagna því að það er sérstaklega tekið fram að sveitarfélögum á Reykjanesi verði boðið til samráðs um mótun og uppbyggingu móttökumiðstöðvar og brottfararstöðvar. En svo er fullyrt hér í frumvarpinu, í áhrifamatskaflanum, að það sé almennt séð ekki talið að þau nýmæli sem frumvarp þetta kveður á um muni hafa útgjaldaauka í för með sér fyrir sveitarfélögin á svæðinu. Mér þykir það svolítið skjóta skökku við að fullyrða þetta þegar í nokkrum málsgreinum á undan því er lýst að það hafi ekki verið reiknað út hver kostnaðurinn af brottfararmiðstöðinni verður t.d., hvaða þjónusta verður þar. Ég hygg að sveitarfélögin þurfi að láta þetta mál til sín taka frá fyrsta degi og svo sannarlega hér í þinglegri meðferð og á von á því að sveitarfélögin á svæðinu og fleiri sveitarfélög láti sig málið varða, ég a.m.k. óska þess.