157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[20:00]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að sjá hæstv. ráðherra í salnum, án efa búin að vera að hlusta á hvert einasta orð hér. (Dómsmrh.: Svo sannarlega.) Sannarlega. Við erum auðvitað að ræða hér frumvarp um brottfararstöð og því meira sem ég glöggva mig á á málinu því betur sé ég að það er umtalsvert viðameira heldur en ég bjóst við í upphafi, sem sýnir bara að maður þarf að kynna sér málin vel.

Það liggur fyrir að í frumvarpinu er verið að taka utan um, ég leyfi mér að segja mjög mikilvæg mál sem flestir geta verið sammála um að hafa ekki verið í góðu skikki á Íslandi. Það á við um þá aðila sem hafa neitað að fara úr landi þrátt fyrir að hafa fengið lúkningu mála á öllum stjórnsýslustigum en það á ekki síður við að það sé betri yfirsýn yfir málaflokkinn.

Fyrst þegar ég heyrði af málinu á síðasta kjörtímabili þá sá ég fyrir mér að um væri að ræða brottfararstöð sem væri að öllum líkindum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða mjög nálægt flugstöðinni. Þarna væri um lokað úrræði að ræða og þar væri fólk sem væri á leiðinni úr landi og hefði þá stöðu raunverulega að vera ólöglegt í landinu. Í greinargerðinni kemur fram að það teljist vera töluverð samlegðaráhrif af því að hafa móttökumiðstöð, skimunarstöð á sama stað og það á að færa hana úr miðborginni yfir á Suðurnesin. Ég held að það hljóti að vera að það liggi fyrir. Það kemur reyndar fram að húsnæðið í miðborginni sé ekki gott. Það liggur a.m.k. fyrir að það séu ákveðin samlegðaráhrif í því og auðvitað er það innan sama málaflokks.

Eins og kom fram í samtali mínu, virðulegi forseti, við hv. þingmenn hér áðan þá erum við einnig að tala um þann hóp sem er í svokallaðri umborinni dvöl. Ef ég skil það rétt þá er um að ræða fólk sem á að vísa úr landi en stjórnvöld hafa ekki alveg úrræði til þess og það fólk dagar því mögulega hérna uppi, sem er auðvitað mjög slæmt fyrir það. Það hlýtur að þurfa að taka tillit til þeirra þarfa sérstaklega varðandi móttökumiðstöð og brottfararstöð. Ég held að það sé auðvitað ýmislegt í þessu sem þarf að vinna vel og vandlega og verður eflaust gert innan nefndarinnar og ég treysti því að hæstv. ráðherra og hennar ráðuneyti muni ekki láta sitt eftir liggja í því.

Það bárust 13 umsagnir í samráðsgátt við málið, ef ég man rétt, m.a. frá Reykjanesbæ og frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Eins og ég tók fram í andsvari mínu við hæstv. ráðherra þá mætti hún á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og ræddi málið. Þar átti hún góð samskipti, miðað við hennar svör hér áðan, við sveitarstjórnarfólk sem sannarlega hefur áhyggjur af málinu, þó að það ágæta fólk hafi töluvert mikla reynslu af málaflokknum. Það er auðvitað fyrst og fremst, eins og kom fram á þeim fundi, vegna þess að það hefur borið við að þungi málaflokksins hefur lagst mjög á svæðið umfram önnur svæði landsins og sett álag á innviði eins og flestum er kunnugt. Þar er undir heilbrigðisþjónusta, velferðarþjónusta sveitarfélags, auðvitað skólamál og einnig starfsemi Brunavarna Suðurnesja sem hafa sinnt sjúkraflutningum tengdum málaflokknum og svo má lengi telja.

En það er ekki vegna þess að það sé einhver sérstök andstaða á þessu svæði eða að ég sé sérstakur andstæðingur þessa máls að ég er að nefna þetta. Það er bara fyrst og fremst vegna þess að á undanförnum árum hefur þunginn verið mjög mikill á þessu svæði og þess vegna er svo mikilvægt að vita nákvæmlega um hvað hér er fjallað, að það sé tekið tillit til athugasemda við frumvarpið og haft náið samráð við sveitarfélögin. Kostnaðurinn til að mynda hvað þessa hluti varðar skiptir að sjálfsögðu máli. Á undanförnum árum hafa sveitarfélögin nefnt að kostnaður af málefnum fólks sem sækir um alþjóðlega vernd leggist óhóflega á ákveðin sveitarfélög, það sé ekki tekið tillit til kostnaðar vegna barna sem eru innan þessa kerfis og njóta menntunar hjá sveitarfélögunum og sama á við um velferðarþjónustu sveitarfélaga. Vegna þess að til að mynda á Suðurnesjum hefur verið mjög stór hópur fólks í samræmdri móttöku fyrir hælisleitendur þá er það stór kostur að það er mikil reynsla á svæðinu hvað málaflokkinn varðar.

En því vil ég segja það að við þurfum að koma svolítið hreint fram hvað þetta mál varðar. Það liggur í hlutarins eðli að ef innviðir á viðkomandi svæði sem mögulega verða fyrir áhrifum af þessari breytingu og þessari starfsemi eru nú þegar ekki nógu öflugir, þá hafa heimamenn verulegar áhyggjur. Hæstv. dómsmálaráðherra veit það að húsakynni lögreglunnar á Suðurnesjum hafa verið afskaplega bágborin og það vill þannig til að Suðurnesin eru ekki eina lögregluumdæmið sem það á við um. Það hefur almennt verið þannig innan lögreglunnar. Ég veit og treysti því að það sé verið að vinna hratt og örugglega að því að styrkja umgjörð lögreglunnar á Íslandi. En lögreglan á Suðurnesjum er nýlega komin í gámabyggð og það er ekki fyrirséð hvort hún fái varanlegt húsnæði á næstunni sem dæmi. Samt erum við að fara að færa þetta veigamikla verkefni til embættisins. Ég treysti því að það verði vel fjármagnað og hugað að þeim þörfum sem snúa að því, verði það að veruleika.

Virðulegi forseti. Auðvitað er þetta 1. umræða um þetta veigamikla mál og hér hefur ýmislegt fróðlegt komið fram í umræðunni sem ég held að sé mikilvægt fyrir nefndina að huga að. Varðandi samráðið þá vil ég aftur nefna að það hefði verið skynsamlegra að hefja slíkt samstarf fyrr þar sem hér kemur fram að bæði á að hafa móttökumiðstöð og brottfararstöð á Suðurnesjum. Hópurinn er fjölbreyttur samkvæmt því sem hefur komið hér fram og liggur fyrir í frumvarpinu. Hann þarf þjónustu, hún þarf að vera fagleg, manneskjuleg og öflug og taka mið af þörfum hvers hóps fyrir sig og þeir geta verið mjög fjölbreyttir þannig að samráðið er númer eitt, tvö og þrjú.

Það kemur líka fram að lögreglan á Suðurnesjum fái leyfi til þess að manna þessa þjónustu sómasamlega. Þá vil ég nefna í þessu tilliti að það voru gerð ákveðin drög að námsleið sem þá var reyndar ætluð sem námsleið vegna úrræða fyrir fólk sem væri neyðarvistað. Ég man ekki til þess að það hafi klárast, það hafi svona hálfpartinn dagað uppi, en hugmyndin var sú að það væri til nám sem þveraði veigamikla þætti og þekkingu til að takast á við fólk sem mögulega gæti einmitt verið í brottfararstöð. Töluvert af þessu fólki, ekki síður í móttökumiðstöð, glímir við alls kyns vanda. Þetta frumvarp gæti verið tilefni til að dusta rykið af þeirri vegferð og tryggja að það verði öflugt, mig minnir að það hafi verið kallað öryggisstarfsmannanám. Það var ekki verið að tala um fangaverði, ekki lögreglu, ekki öryggisverði fyrirtækja eins og t.d. Securitas. Það væri búin til öflug námsleið sem tæki tillit til þess hvernig það fólk þarf að vera þjálfað svo það geti beitt sér og nýst vel einmitt í aðstæðum sem þessum.

Það var nefnt á þessum fundi sem við áttum saman, ég og hæstv. dómsmálaráðherra, að sporin hræða á Suðurnesjum. Ég hef reyndar verið lengi á þeirri skoðun að Suðurnesin hafi haldið ótrúlega vel utan um það að taka við stórum hópi fólks sem hefur sótt um alþjóðlega vernd, líka verið með samræmda móttöku fyrir mjög stóran hóp fólks í þjónustu sveitarfélaganna. Suðurnesjabær til að mynda hefur staðið sig frábærlega varðandi þjónustu fylgdarlausra barna og svo má lengi telja. Á þetta fólk allt þakkir skildar fyrir það. En það verður bara að segjast að álagið á köflum á undanförnum árum á svæðinu var allt of mikið. Það er ekkert hægt að horfa fram hjá því. Og þegar þessar hugmyndir koma upp er eðlilegt að sporin hræði. Það er ekki bara varðandi fjármögnun, það er líka varðandi húsnæðismál og þess vegna er mikilvægt að vinna þetta eins vel og hægt er.

Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmari Guðmundssyni að því meira pólitískt samráð sem á sér stað varðandi þennan málaflokk, því betra, og þvert á flokka hér á þingi. Þetta er mál sem kemur fram hjá síðustu ríkisstjórn eða þetta er vinna sem var unnin að stórum hluta þar. Það var mjög hart tekist á um þennan málaflokk á síðasta kjörtímabili, óþarflega hart, leyfi ég mér að segja. Það sýnir sig kannski bara í því að þetta frumvarp skuli vera komið fram sem á sannarlega að leysa ákveðna hluti sem við erum ekki stolt af í þessu kerfi, tryggja það að við getum farið rétta leið og við séum að horfa til Norðurlandanna hvað það varðar. Ég held að það sé skref í rétta átt. En samráð númer eitt, tvö, þrjú og fjögur er algjört lykilatriði.

Ég sagði, virðulegi forseti, á sínum tíma þegar við fengum þúsundir aðila sem sóttu hér um alþjóðlega vernd, fyrst og fremst frá Venesúela og Úkraínu, að það væri mikilvægt fyrir okkur að koma því þannig fyrir að byrðum þessa málaflokks yrði jafnt dreift yfir landið. Það var ekki vegna þess að ég bý í Reykjanesbæ og þar hafi staðan á þeim tíma verið eitthvað sérstaklega slæm, alls ekki. Það er bara vegna þess að það hefur sýnt sig að þegar stórir nýir hópar koma þá gagnast þeim líka best að vera ekki safnað saman á einn stað. Þjónusta sveitarfélaganna er býsna góð á Íslandi og í sveitarstjórnarlögum kemur fram að sveitarfélögin hafi ákveðnum skyldum að gegna gagnvart fólki sem hingað kemur og leitar alþjóðlegrar verndar. Sveitarfélögin hafa alls ekki skorast undan því. En ég vil að við tökum tillit til þess að til að gera þetta úrræði vel úr garði gert þá þarf að haka í öll þessi box og hafa fyrst og fremst samráð við sveitarfélögin á Suðurnesjum.