157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

brottfararstöð.

230. mál
[20:15]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vildi koma hér upp í lokin til að þakka þeim þingmönnum sem tóku þátt í umræðunni sem mér finnst að hafi verið býsna góð. Auðvitað erum við í þessu frumvarpi fyrst og fremst að tala um brottfararstöðina sjálfa, inntakið í starfsemi hennar, ástæður að baki og markmiðið með henni. En þarna er jafnframt, eins og ég nefndi í framsöguræðu minni, verið að ræða um þessa skimun á reglugerð og það sem henni fylgir. Ég tek út úr þessari umræðu að ákveðin gögn fylgi þá inn í málið þegar það er til meðferðar hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd, þ.e. frekari upplýsingar. Þær verða unnar í ráðuneytinu, t.d. um kostnaðinn. Þar nefni ég að auðvitað verður það alltaf ögn háð óvissu hversu margir verða þarna. En ég held í því sambandi að það megi nú líta til þess, eins og góður þingmaður nefndi hérna við mig frammi á gangi, hverjar tölurnar eru um þá sem hafa sætt gæsluvarðhaldi. Þá megi gera ráð fyrir því að það séu hliðstæðar tölur þótt maður vonist auðvitað til þess að tilvist svona úrræðis ýti undir það að fólk sýni samvinnu.

Hér hefur aðeins verið rætt um móttökumiðstöð og þar vil ég bara árétta sérstaklega að hér erum við að tala um að skimanir fari fram þar en ekki að fólk verði beinlínis vistað. Hugtakið umborin dvöl hefur komið hérna upp af því að við erum að tala um visst samhengi. Annað frumvarp sem ég er hér með til meðferðar og hef mælt fyrir í tvígang, sem varðar afturköllun verndar, vona ég svo sannarlega að þingið afgreiði fyrr en síðar. Þá getur það auðvitað gerst að maður sem fengið hefur alþjóðlega vernd og er sviptur henni vegna þess að hann hefur verið dæmdur fyrir alvarlegan glæp eða er dæmdur fyrir síendurtekin afbrot missi verndina og það eigi að vísa honum úr landi. Við vitum t.d. hver staðan með Sýrland hefur verið á liðnum árum. Þangað er fólk ekki sent, þó að það sé nú óðum að breytast. Nú eru ríki farin að senda fólk þangað sem sjálfviljugt fer. En gefum okkur nú dæmi af manni sem dæmdur hefur verið fyrir alvarlegt brot og kemur upphaflega frá einhverju landi eins og Sýrlandi, þangað sem er raunverulega ekki hægt að senda hann aftur til baka. Ekkert siðað ríki sendir til þess lands. Þá þurfum við einhverja flokkun á því hvað gerist á meðan. Það er dvöl með þessum hætti. Mér hefur fundist þetta vera góð umræða, eins og ég segi. Mér finnst mikilvægt í svona umræðu um útlendingamál og útlendingalöggjöf að við séum að reyna að ná utan um einhverja heildarmynd. Þannig hef ég reynt að nálgast málið.

Mig langaði líka aðeins til að koma inn á það sem hv. þingmaður nefnir hérna í lok umræðunnar um stöðuna á Suðurnesjum. Ég er meðvituð um hana og ég held að það sé alltaf best að segja hlutina eins og þeir eru. Ég vissi af því t.d. fyrir þennan fund sem ég átti með samtökum sveitarfélaga þar, að þar væri ákveðin þreyta. Það held ég líka að segja megi eins og er, að eins og þingmaðurinn nefnir hefur þar verið mikill þungi á tilteknu svæði. Auðvitað hefur það áhrif. Þarna er, eins og þingmaðurinn nefnir líka, mikil reynsla. Þessa reynslu á að virða. Á þessa reynslu og þessar raddir á að hlusta. Ég mun sannarlega leggja mig fram um það, núna í kjölfar þess að ég er búin að mæla fyrir þessu frumvarpi, að eiga í samtölum við þá aðila sem máli skiptir að rætt sé við. Því að það eru ekki bara kjörnir fulltrúar. Það er heldur ekki bara það fólk sem mun vinna á þessum stað. Það er líka lögreglan, það eru líka starfsmenn heilsugæslunnar á svæðinu sem hafa spurningar um það hver verður okkar þáttur í samhengi við einhver veikindi sem þarna koma upp. Ég held að það sé mikilvægt að við ræðum þetta og ræðum þetta með opnum hætti og ræðum þetta af yfirvegun og þroska.

Þingmaðurinn nefndi í lokin húsnæðismál lögreglunnar á staðnum og ég er líka mjög meðvituð um það hver staðan er á þeim. Hún er þannig býsna víða á landinu. Það er auðvitað sjálfstætt verkefni okkar í ríkisstjórninni og vonandi með góðum stuðningi þingsins að reyna að gera bragarbót þar á. Svona fjárfestingar kosta alltaf eitthvað og hér þarf að vanda til verka. Ég vil þó leyfa mér að nefna að eitt eru húsnæðismálin, en svo er annað sem ég upplifi mikinn stuðning við hérna inni í þessum sal, sem er einfaldlega að styrkja umgjörð lögreglunnar í landinu. Þá erum við að tala um mannafla. Þá erum við að tala um heimildir, og að við gleymum því ekki að við búum í eina NATO-ríkinu sem er ekki með sjálfstæðan her. Það leiðir af sjálfu sér að í því öryggislandslagi sem við búum við í dag varðandi fjölþáttaógnir og annað að það mæðir sannarlega ekki minna á lögreglunni á Íslandi heldur en t.d. á Norðurlöndunum þegar við tökum tillit til þess að hér er það lögregla sem fer með allan þunga verkefna. Þegar við tölum um drónaárásirnar og það sem gekk á í Danmörku fyrir ekki svo löngu — mér finnst áhugavert að nefna þetta — þá var það þannig að þarna tókst að stoppa flugumferð á Kastrup-flugvelli. Flugvellir hafa krítíska fúnksjón í hverju landi fyrir sig og forsætisráðherra Dana var mjög skýr um það hvaða augum hún leit á þetta og talaði um að Danir væru í stríði. Hún leit þannig á þetta mál eða þannig mat hún þessa ógn. En þegar maður horfir síðan á það hverjir yrðu helstu þátttakendur í þeim stríðsrekstri sem forsætisráðherra Dana vísaði þarna til, þá var það lögreglan í Danmörku. Það var ríkislögreglustjórinn og lögreglustjórinn í Kaupmannahöfn sem voru frontur þessa máls í samtölum við almenning en líka í viðbrögðum á flugvellinum. Við sáum engan her. Við sáum lögregluna.

Þegar við horfum til þess hvernig stríð, ógnir og annað eru að breytast í þessu umhverfi dagsins í dag og hvað þessi ógn er að færast nær okkur, þá held ég að þegar við erum að tala um að fara í fjárfestingar og þegar við erum að fara í það að verja auknum hluta útgjalda í svokölluð varnartengd útgjöld þá þurfum við að hugsa hvað það þýðir á landi sem ekki er með sjálfstæðan her. Leiðir það ekki af sjálfu sér að við viljum fjárfesta í almannavörnum, að við viljum fjárfesta í landhelgisgæslu, að við viljum fjárfesta í lögreglunni og ríkislögreglustjóraembættinu og þessum borgaralegu innviðum? Ég bara nefni þetta við þingheim, þótt þetta sé útúrdúr, en ég ákvað að grípa þessi lokaorð þingmannsins, af því að mér finnst þetta svo augljóst. Hús fyrir viðbragðsaðila, svo dæmi sé tekið, hvað er það annað en fjárfesting í varnartengdum verkefnum? Það eru mín lokaorð í þessari umræðu. Annars þakka ég þingmönnum kærlega fyrir. Ég ítreka bara og árétta að ég mun leggja mig alla fram um það að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fái öll þau gögn sem ég get útvegað til að fylla upp í málið. Ég mun sömuleiðis leggja mig alla fram um að eiga í samtölum við þá sem málið varðar og ég er mjög vel meðvituð um að það er ákveðin þreyta fyrir hendi. Það er sannarlega ekki þannig að allir landshlutar hafi fengið þungu verkefnin á sig með hliðstæðum hætti og ég ætla að virða þau sjónarmið.