stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Eins og ég nefndi hér áðan styðjum við stafræna stjórnsýslu, hraða og gagnsæi. Núna fer málið hins vegar til nefndar og verður í meðförum þingsins og þá er alveg ljóst að við í Sjálfstæðisflokknum munum krefjast einfaldari og samræmdari reglna um hvenær birting telst fara fram, minna framsals til reglugerðar, skýrari öryggis- og varaleiða í pósthólfinu og strangari ramma um fjarfundi í viðkvæmum aðgerðum þannig að við fáum bæði skilvirkni og réttarríki sem stenst lög og reglur og sparar skattfé. Hér nefndi hæstv. ráðherra að þetta væri landsbyggðarmál. Það kann að vera en þá vil ég líka spyrja ráðherra hvort til standi að fækka starfsmönnum sýslumannsembætta hringinn í kringum landið með tilkomu þessa frumvarps og þessara stafrænu verkefna.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggst tryggja að stafrænar birtingar verði raunverulega lögmætar og hagkvæmar án þess að knýja fram áframhaldandi pappírsbirtingu. Mun ráðuneytið setja almennar reglur um birtingu í stafrænu pósthólfi stjórnvalda, svo að það teljist gild lög, og útfæra sannarlega rekjanlega sönnun, þ.e. tími, staður og stund, í kerfum sýslumanna? Svo ætla ég að endurtaka spurningu mína frá því áðan: Hver er tímasetningin og hver er kostnaðurinn? Hann hlýtur að hafa verið metinn við þessa innleiðingaráætlun. Ég ítreka það að ég tel þetta jákvætt skref en til þess að réttarríkið standist þær aðgerðir verður að vanda mjög til verka.