157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

stafræn og rafræn málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.

231. mál
[20:43]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni hvað það varðar að það sé þungi í því að við tryggjum réttaröryggi í þeim tilvikum þar sem um er að ræða áskilnað um að viðkomandi hafi móttekið gögnin og að það verði að vera alveg skýrt. Eins og ég rakti í framsöguræðunni eru ekki lagðar efnislegar breytingar á framkvæmd birtingar gagna í þeim tilvikum þegar þessi áskilnaður liggur fyrir þannig að frumvarpinu er ekki ætlað að breyta þeirri framkvæmd. Við ætlum að halda áfram að tryggja réttaröryggi aðila að þessu leytinu til þegar áskilnaður er um skýra staðfestingu viðkomandi á móttöku gagna. Við byggjum auðvitað á góðri reynslu lögreglu og góðri reynslu hjá dómstólum og ég held að sýslumenn muni njóta góðs af því. Sum mál eru auðvitað þess eðlis að hafa þarf varann á, þótt kannski gerist það með tíð og tíma að út úr þessu verði fundið. Staðfest birting er auðvitað algjört kjarnaatriði í þessu samhengi og þeim tilvikum þar sem hagsmunirnir eru þannig. Forritin og annað sem þarf að tryggja í samhengi við innleiðingu. Öll sú vinna hefur verið unnin í gegnum reynslu hinna embættanna sem hafa farið þessa vegferð. Síðan er það svo að það er sjálfstætt markmið mitt að við séum ekki í því að fækka starfsmönnum hjá sýslumönnum. Ég hefði einmitt haldið að þegar verið er að innleiða ákveðnar breytingar þurfi fólk til að fara í þá vinnu og sannarlega engin efni til að fækka nema síður sé. Ég árétta því það sem ég sagði í byrjun og hef sagt hér fyrr í kvöld í tengslum við annað mál: Ég er boðin og búin að tryggja gögn og skýrari svör við meðferð málsins fyrir nefndinni en lít fyrst og fremst á þetta sem einföldunarmál og þjónustumál við þá sem í hlut eiga.