157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.

175. mál
[21:12]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvar og þótt ekki hafi verið spurning í því þá vildi ég koma hér upp samt sem áður og svara hv. þingmanni stuttlega því þetta er alveg rétt sem hann segir. Þetta er líka spurning um hugarfar og oft er það þannig að ef við búum ekki við vissar aðstæður getum við ekki sett okkur í spor viðkomandi aðila sem búa í þeim aðstæðum. Þá þurfum við stundum visst verklag til þess að breyta hugarfari okkar. Við gerðum þetta varðandi jafnrétti í landinu og fleiri þætti og þetta er hugsunin í kringum það að veita þeim aukna innsýn sem skrifa lögin og reglugerðirnar. Flestir þeirra búa hér á stórhöfuðborgarsvæðinu og hafa í raun ekki reynslu af því að búa á landsbyggðinni og átta sig því ekki á því við hvað landsbyggðin er að kljást við. Þar af leiðandi eru oft teknar ákvarðanir ómeðvitað sem hafa hugsanlega áhrif á líf einstaklinga á landsbyggðinni. Það er því ekki verið að hugsa þetta sem einhver forréttindi heldur að við séum með landsbyggðargleraugun á okkur og séum meðvituð um hvaða áhrif þær ákvarðanir sem við tökum hafi á landið allt. Það er hugsunin í kringum þetta. Hér er því ekki verið að refsa einum eða neinum heldur bara: Hvernig getum við aukið gæði lagasetningar með hugsun út frá heildinni en ekki einhverjum sérstökum svæðum?