undanþága vegna verndaraðgerða ESB varðandi kísilmálm.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem voru nokkuð rýr að mínu mati. Ég get ekki tekið undir með ráðherranum um að við séum hér á fyrstu stigum. Þetta er búið að vera í umræðunni nokkuð lengi og við höfum í sjálfu sér gert okkur grein fyrir því að til þessa gæti komið. Ég held að við höfum öll sem eitt reynt að tryggja að það kæmist kirfilega til skila til fyrirsvarsmanna Evrópusambandsins að þetta væri hreint brot á EES-samningnum. Því langar mig til að spyrja ráðherrann að því hvort við munum höfða mál eða hvað við munum gera til þess að Evrópusambandið breyti þessari ákvörðun sinni ef hún verður endanlega að veruleika? Hvað munum við gera? Ef það er svo að við getum ekki treyst því að við séum (Forseti hringir.) með samning við Evrópusambandið varðandi tollfrelsi þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvað verður það þá næst sem Evrópusambandið kemur til með að (Forseti hringir.) mótmæla varðandi t.d. frekari tolla á aðrar vörur eins og ál, svo dæmi sé tekið?
(Forseti (BHar): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)