157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

markmið Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda.

[15:10]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það birtust á vefmiðlinum vísi.is fréttir í dag af eintómum misskilningi ráðamanna um losunarmarkmið Íslands. Kemur í ljós sem stundum hefur verið haldið fram af sumum hér í þessum þingsal að menn virðast ekki vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga í þessum málum, virðast ekki skilja málin. Fréttir eru að berast af leiðréttingum framlaga Íslands en engar fréttir hafa hins vegar verið fluttar af því hvert markmið Íslands er í samdrætti um losun Íslands.

Við höfum tekið eftir því að hæstv. ráðherra vill tiltekt í losunarmálum. Þá er rétt að hafa það í huga að svokallað sameiginlegt markmið Evrópusambandsins er 40% og þegar Ísland kærði sig inn í þá vegferð alla þá var að sjálfsögðu rétt að halda að það ætti við um okkur en hins vegar var samið um einhvers konar 29% í byrjun. Ef ég súmmera upp nokkrar fullyrðingar sem hafa verið á sveimi undanfarin ár, þá hefur því í fyrsta lagi verið haldið fram að heildarmarkmið Íslands um losun sé líklega 41% fyrir árið 2030 miðað við árið 2005. Þessu er t.d. haldið fram á vefsíðu Umhverfisstofnunar og hér er verið að vísa í svokallaða samfélagslosun. Í öðru lagi hefur því verið haldið fram að heildarmarkmiðið sé 29% fyrir árið 2030, einnig miðað við árið 2005. Í þriðja lagi er uppfært markmið núna, virðist vera, um 55% samdráttur í samfloti með Noregi og ESB, en nota bene, þetta er miðað við árið 1990. Í fjórða lagi var fyrir rúmu ári síðan birt á vefsíðu Stjórnarráðsins tilkynning um að Ísland gæti náð 35–45% samdrætti árið 2030 og í nýrri tilkynningu frá hæstv. ráðherra, 12. september, er stefnan sett á 50–55% samfélagslosun fyrir árið 2035 miðað við árið 2005.

Ég hlýt að spyrja hæstv. ráðherra: Hvert er markmið Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í dag þegar við stöndum hér og nú í þeirri viðleitni að reyna að fá þetta á hreint a.m.k. fyrir árið 2030?