þróun á vinnumarkaði og aðgerðir í atvinnulífinu.
Frú forseti. Staða atvinnumála hefur breyst snögglega undanfarnar vikur og mánuði og það eru sífellt fleiri merki uppi um að hagkerfið sé að kólna. Atvinnuleysi er að aukast, Play er fallið, við sjáum uppsagnir hjá Icelandair og það er mikil óvissa í ferðaþjónustunni. Atvinnulífið heldur að sér höndum og fjárfesting dregst saman hjá fyrirtækjum í landinu. Gengið veikist og óvissa ríkir í alþjóðaviðskiptum og tollamálum og á sama tíma eykst skattbyrði á bæði almenning og fyrirtæki í landinu. Það blasir við að óvissan er mikil og traust á efnahagsstefnu stjórnvalda fer minnkandi hjá atvinnulífinu og fjölskyldum og fólkinu í landinu. Landsbankinn spáir nú minni hagvexti á næsta ári en gert var ráð fyrir, eða um 1,7%, og Hagstofan er á svipuðum slóðum. Í ljósi þessa alls vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessari þróun á vinnumarkaði og í efnahagslífinu almennt og hvort hann telji ekki tímabært að stjórnvöld marki sér skýrar og samræmdar aðgerðir til að örva atvinnulífið í landinu til að við getum vaxið út úr þessari stöðu sem skapast hefur á undanförnum mánuðum.