þróun á vinnumarkaði og aðgerðir í atvinnulífinu.
Virðulegi forseti. Það var einmitt rætt um það fyrr á árinu að hér ætti að blása til nýsköpunarhausts, um sóknarfæri og uppbyggingu í atvinnulífinu. Nú þegar haustinu er lokið þá bólar ekkert á slíku nýsköpunarhausti og í rauninni bólar heldur ekkert á því að ríkisstjórnin sé að ná tökum á verðbólgu og vöxtum í landinu. Við sjáum núna að það er 1% frávik í hagspá frá upprunalegum áætlunum í vor og þetta hefur í rauninni áhrif á allt hér í landinu; á tekjur ríkisins, atvinnuþátttöku og allt.
Ég spyr aftur: Hvaða aðgerðir hyggjast stjórnvöld ráðast í til að örva atvinnulíf, fjárfestingu og nýsköpun á komandi mánuðum? Er ekki tilvalið að ráðast í öfluga markaðssetningu í ferðaþjónustu og ráðast í einföldun á leyfisveitingaferli í sjó- og landeldi? Er það virkilega þannig að ráðherrar segi að staðan sé bara allt í lagi þrátt fyrir 1% lækkun á hagvexti og að atvinnuleysi sé að aukast? Eða er stefna ríkisstjórnarinnar bara einfaldlega sveltistefna (Forseti hringir.) sem á að neyða þjóðina inn í Evrópusambandið? Er það plan ríkisstjórnarinnar, virðulegi forseti?