157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

endurskoðun skatta og gjalda á ferðaþjónustu.

[15:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að halda mig við atvinnumálin. Það var áhugavert að hlusta hér á hæstv. ráðherra tala um að áföllin væru ekki af þeirri stærðargráðu að þau kölluðu á sérstakar aðgerðir. „Við erum í samtali. Það er margt á döfinni. Það er margt í gangi. Það er fjöldi fyrirætlana.“ Þetta var það sem við fengum og síðan: „Við erum í mikilli vinnu að öflugri atvinnustefnu.“

Virðulegi forseti. Á meðan er óvissa í atvinnugreinunum. Á sama tíma eru auknir skattar á fiskveiðar og gríðarleg óvissa er um helstu nytjastofna og útlit fyrir stórkostlega minni heimildir í makríl og kolmunna. Þrátt fyrir gefin loforð horfum við á nýja skatta á ferðaþjónustuna og almenning líka þegar kemur að því að skella tvöföldun á vörugjaldi og kílómetragjaldi á alla bílaeigendur. Þessir skattar munu hækka verðið á ferðum til Íslands stórkostlega og draga úr samkeppnishæfni. Þetta er kannski partur af atvinnustefnunni.

Bílaleigur kaupa um helming af nýskráðum bílum á Íslandi á hverju ári. Það þýðir að af þeim vörugjaldahækkunum sem eiga að skila 7 milljörðum í ríkissjóð er gert ráð fyrir að 3,5 milljarðar komi beint frá bílaleigufyrirtækjum. 60% ferðamanna taka bílaleigubíla. Það er grunnurinn að því að auka dreifingu þeirra til ferða um allt land. Það er fyrirhugað að leggja á náttúru- og innviðagjald. Útfærslan er óljós. Svo er alvarleg staða í orkufrekum iðnaði og núna nýjustu fréttir af útspili Evrópusambandsins, þar sem ráðherrann sagði reyndar áðan að við hefðum ekki beinan aðgang að innri markaði eins og ef við værum í ESB. Í því felast auðvitað þau skilaboð sem ráðherrann stendur fyrir í Evrópumálum.

Við þurfum sókn og hvata, virðulegur forseti, og ég þykist vita að ráðherrann geri sér grein fyrir þessari alvarlegu stöðu. Getur hann tekið undir með mér að nauðsynlegt sé að endurskoða núna öll áform um þessar skattaálögur, a.m.k. á meðan atvinnustefnan er í smíðum, (Forseti hringir.) a.m.k. á meðan við erum ekki með annað í hendi heldur en „við erum í samtali, það er margt á döfinni, það er margt í gangi og það er fjöldi fyrirætlana“, að við drögum úr þessum skattaáformum til að efla stöðu atvinnulífsins (Forseti hringir.) við þessi erfiðu skilyrði sem eru í samfélaginu í dag.