endurskoðun skatta og gjalda á ferðaþjónustu.
Virðulegur forseti. Við erum að fylgjast með, við erum að skoða, við erum að endurmeta, við erum í þéttu samtali. Ég hélt að það hefði verið plan. Var það ekki? Var það ekki það sem var talað um fyrir ári síðan, að það væri plan? Það væri plan um öll þessi stóru mál og nýsköpunar- og verðmætahaustið átti að byggja á plani. Ég veit ekki hvar við erum stödd, virðulegur forseti. Það er ástæða til að spyrja ráðherrann aftur hvort hún telji ekki við þessar alvarlegu aðstæður fullt tilefni til að endurskoða skattagleði ríkisstjórnarinnar gagnvart atvinnulífinu í landinu þegar staðan er svo alvarleg sem raun ber vitni. Ég er ekki sammála ráðherranum um að stærðargráðan sé þannig að þetta kalli ekki á neinar sérstakar aðgerðir.
Fiskeldi er vaxtarbroddur. Ég hef talað fyrir því í mörg ár en það sést heldur ekkert í áformum ráðherrans og er næst að kalla þá eftir burðarþols- og áhættumati fyrir Eyjafjörð sem er búið að bíða eftir í allt of langan tíma. Það hefur ekkert komið frá ráðherranum annað en einhver plön um að hlusta á og tala við og endurmeta o.s.frv. (Forseti hringir.) Það hefur verið gert, hæstv. ráðherra, að verja okkur með því að skoða leiðir að öðrum mörkuðum, horfa ekki eingöngu til Evrópusambandsins, (Forseti hringir.) horfa til að mynda til Bandaríkjanna, þessarar vinaþjóðar sem við eigum varnarsamning við, horfa til þeirra alveg sérstaklega um að fá fríverslunarsamninga (Forseti hringir.) og opna greiðari leiðir fyrir vörur Íslands inn á aðra markaði þegar Evrópusambandið ætlar að koma svona fram við þessa litlu þjóð.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)