157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

endurskoðun skatta og gjalda á ferðaþjónustu.

[15:32]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Ég verð nú að leyfa mér að segja það hér að þau sem virðast einblína á Evrópusambandið í þessum sal eru ekki stjórnarliðar, er það? Hér kemur ekki stjórnarandstöðuþingmaður upp með nokkurt erindi án þess að býsnast út í Evrópusambandið. (Gripið fram í: Svaraðu spurningunum. )Ég er á leiðinni þangað, hv. þingmaður. Síðan er það hitt. Við erum að kljást við afleiðingar þess að hér var skellt á gjöldum í tíð síðustu ríkisstjórnar án nokkurs fyrirvara, án nokkurs plans, án nokkurs samtals. Það er það sem við erum að skoða núna. Við erum líka að vinna í því, og hv. þingmaður var hreinskilinn með það, að hér hafa liðið allt of mörg ár án þess að tekin hafi verið afstaða eða teknar ákvarðanir þegar kemur að þessari mikilvægu atvinnugrein sem fiskeldið er. Ég bara þakka traustið ef hv. þingmaður er orðinn óþreyjufullur eftir því að ég sé ekki eftir einhverja mánuði í starfi búin að klára það mál. En ég get svarað því að það er í bígerð, það er í vinnu.

Ég átta mig alveg á því, að öllu gamni slepptu, að það er óþreyja, það er óþreyja hér í þingsal og það er óþreyja úti í samfélaginu eftir því að fá svör við mörgum af þeim spurningum sem hér hefur verið velt upp. Þau svör koma. Við viljum vanda vel til verka og þegar ég segi að það sé ekki ástæða til aðgerða (Forseti hringir.) er ég að meina að það sé ekki ástæða til kúvendinga. Það er fullkomin ástæða til að halda áfram á þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er (Forseti hringir.) í verðmætasköpun. Því munum við halda áfram og af því munu berast fréttir m.a. hingað inn.