úttekt á efnistökum Ríkisútvarpsins.
Virðulegur forseti. Ég er ekki sannfærður um að ég sé sá af okkur tveimur hv. þingmönnum sem er flinkastur í gaslýsingum hér, en látum það eiga sig.
Besta athugun á hlutleysi fjölmiðla er traust á þeim. Nú er það þannig að BBC virðist hafa gert alveg hroðaleg mistök og það hafði afleiðingar; tveir mjög virtir blaðamenn voru látnir taka pokann sinn. Samt nýtur BBC mikils trausts og er kannski sá fjölmiðill í heiminum sem nýtur mests trausts, þannig að þau eru viljug til þess að taka á þessu. Að sama skapi hefur komið fram ítrekað, í könnun eftir könnun, að íslenska Ríkisútvarpið, RÚV, nýtur gríðarlega mikils trausts og ég deili ekki áhyggjum hv. þingmanns af því að Ríkisútvarpið gangi einhliða fram og stundi einhvers konar innrætingu eða haldi hlutunum bjöguðum. Það er ekki mín tilfinning. Það er hins vegar sjálfsögð krafa að Ríkisútvarpið, sem fær mikið fé á fjárlögum og gegnir miklu og mikilvægu hlutverki sem almannaheillaútvarp, sé undir stöðugri skoðun og gagnrýni. Ég hef nú ekki séð annað en að Ríkisútvarpið sé kannski meðal þeirra opinberu stofnana sem oftast fá gagnrýni héðan úr þessum þingsal og kannski hefur hv. þingmaður ekki haldið margar ræður án þess að víkja að því. Ég deili því ekki áhyggjum hv. þingmanns af hlutleysi Ríkisútvarpsins.