157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:45]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég gæti næstum því farið að gráta, ég er svo glöð að vera komin hingað. Öllum skal með lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna öldrunar, örorku, atvinnuleysis og hvers annars sambærilegs. Þetta boðar Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þrátt fyrir það hef ég ítrekað staðið hér til að verja tilverurétt fatlaðs fólks, sem á í rauninni þegar þennan stjórnarskrárvarða rétt, vegna þess að þau eru talin kosta hugsanlega of mikið. En í dag munum við greiða atkvæði um þessi réttindi fatlaðs fólk, um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hjartans þakkir fyrir að vera komin hingað.