samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Eins og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra nefnir þá kveður stjórnarskráin, þessi gamla góða, einmitt á um réttindi allra og skyldur stjórnvalda í því sambandi og líka skyldur einstaklinga. Því miður er það svo að hér hefur verið gefinn ádráttur um það að lögfesting á þessum samningi, sem ekki felur í sér nein efnisréttindi fyrir fatlað fólk, muni hins vegar gera það og menn geti sótt sér einhvern rétt sem þeir hafi ekki einu sinni getað sótt með vísan í stjórnarskrána okkar, þessa gömlu góðu. Það er því miður ekki þannig. Í viðbótarnefndaráliti hv. velferðarnefndar við 3. umræðu málsins kom einmitt fram meginmisskilningur í málinu þar sem því er fullum fetum haldið fram að það felist í þessu einhver efnisréttur sem sveitarfélög m.a. þurfi að standa skil á. Það er því miður ekki þannig. Í því ljósi, vegna vanbúnings þessa máls fyrir þinginu, get ég ekki greitt málinu atkvæði. Ég leggst ekki gegn því en því miður, og þykir mér það leitt, (Forseti hringir.) get ég ekki stutt málið eins og það er úr garði gert af hálfu hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra.