157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:46]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Eins og ítrekað hefur komið fram hér í þingsal og í meðferð hv. velferðarnefndar þá höfum við í minni hlutanum verið að benda á vanbúnað málsins, benda á það að kostnaðarmat hefur vantað og sveitarfélögin, sem bera hitann og þungann af þjónustu og ábyrgð þessa málaflokks, hafa ítrekað, enn og aftur nú í fyrradag, skorað á þingið að láta gera slíkt kostnaðarmat. Því voru það mikil vonbrigði þegar breytingartillaga okkar Sjálfstæðismanna um að samningurinn yrði samþykktur með endurskoðunarákvæði skyldi hafa verið felld. Endurskoðunarákvæðið gerði einmitt ráð fyrir því að kostnaðarauki sem myndi falla á sveitarfélögin yrði endurskoðaður eftir tvö ár. Þar er fyrst og fremst verið að hugsa um það, virðulegur forseti, að hægt sé að treysta því að þjónustan verði innt af hendi, að þeir sem eru með væntingarnar núna fái örugglega þjónustuna. Þar sem við styðjum markmið frumvarpsins (Forseti hringir.) og markmið þessa máls þá munum við Sjálfstæðismenn styðja það hér í dag en ég boða (Forseti hringir.) þingsályktunartillögu í næstu viku sem gengur út á það að málaflokkurinn verði færður aftur til ríkisins, fjárhagsleg ábyrgð hans, því að við viljum treysta og passa upp á að fólkið fái þá þjónustu sem það væntir.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)