157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er stór dagur í dag. Þetta er búin að vera löng vegferð sem lýkur hér með lögfestingu þessa samnings. Hér er um mikilvæg mannréttindi að ræða og þingflokkur Framsóknar styður þetta mál heils hugar. Við munum gera það hér í dag en þó með þeim fyrirvara að í málsmeðferðinni, sem er ófullnægjandi að okkar mati, hefur verið bent á að kostnaður muni fylgja þessari lögfestingu. Því hefur verið hafnað að fara í kostnaðargreiningu til þess einmitt að fjármunir fylgi þessari lögfestingu svo að sveitarfélög sem vilja veita góða þjónustu til þessa málaflokks fái fjármuni til þess að geta veitt hana almennilega. Við setjum því þann fyrirvara en við fögnum þessu skrefi. Þetta er mjög jákvætt og við verðum hér á grænu í dag.