157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:51]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Í dag greiðum við atkvæði um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta er gott mál, þetta er raunverulega frábært mál. Þetta kemur fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember síðastliðnum og þetta hefur verið á stefnuskrá Viðreisnar frá stofnun flokksins 2016. Hér er um réttlætismál að ræða og með lögleiðingu sáttmálans sendum við skýr skilaboð um að styrkleikar okkar allra skipti máli hér á landi. Þetta er ekki aðeins réttlætismál heldur jafnréttismál. Við erum öll jöfn í þessu landi. Þingflokkur Viðreisnar greiðir að sjálfsögðu atkvæði með lögfestingu sáttmálans og samþykkt frumvarpsins og erum stolt af því. Þetta er mikilvægur áfangi sem ég óska okkur til hamingju með.