samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil óska okkur öllum til hamingju með daginn. Með þessari lögfestingu erum við loks að gera sjálfsögð mannréttindi að lögbundnum rétti. Samningurinn áréttar virðingu fyrir eðlislægri reisn einstaklinga og undirstrikar að mannréttindi eru algild, ódeilanleg og samtvinnuð og þau eiga við um alla, þar með talið fatlað fólk. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið að því að innleiða ákvæði samningsins í landslög með markvissum hætti og er þessi lögfesting ekki að bæta við réttindin heldur að lögfesta mannréttindasamning sem staðfestir rétt sem þegar er bundinn í íslensk lög. Þjónusta við fólk er viðvarandi verkefni stjórnvalda, hvort sem það eru sveitarfélög eða ríkið.
Varðandi áhyggjur fólks af auknum álögum í húsnæðismálum þá er þetta viðvarandi verkefni og nefna má að í nefndaráliti meiri hlutans er sérstaklega tekið fram að við viljum og ætlum að vinna með sveitarfélögunum að því að halda áfram að tryggja húsnæði fyrir fatlað fólk. Ég gleðst yfir því í dag að við getum samþykkt þennan mannréttindasamning. Fatlað fólk hefur lengi beðið þessa dags og ég mun með stolti greiða honum atkvæði mitt.