157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[15:56]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Loksins, loksins, loksins. Fyrir áratugi síðan var ég í kjarahópi Öryrkjabandalagsins, stjórn Landssambands fatlaðra, stjórn Öryrkjabandalagsins og aðalbaráttumálið: Lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Höfum jafnrétti fyrir alla. Við erum loksins að gera það. 2019 samþykktum við þingsályktunartillögu, ég stóð hér í sal og fagnaði, um það að árið 2020 yrðum við búin að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Það tókst ekki en núna erum við að fagna. Ég segi alveg eins og er að ég mun segja já, já, já næstu daga og fagna þessu innilega, til hamingju. Við erum að taka langt og mikið skref fyrir fatlað fólk sem var löngu tímabært.