157. löggjafarþing — 32. fundur, 12. nóv. 2025.
samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
106. mál
Virðulegur forseti. Ég segi já við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta er risastórt jafnréttismál. Okkur ber að standa vörð um réttindi allra íbúa þessa lands. Þetta er mikil réttarbót, þetta er sanngirnismál og þetta snertir mannréttindi. Innilega til hamingju með daginn, öll. Ég segi já.