157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:12]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það sem hefur verið til umræðu hérna síðustu vikur og mánuði er einungis það að það er verið að enduróma áhyggjur þeirra sem veita þjónustuna. Við vitum um hallann á málaflokknum nú þegar og það hafa verið margir spjallfundir í gegnum árin og það er talað um að það sé vantraust vegna fráfarandi stjórnvalda eða fyrrverandi. Þá hefði núverandi stjórnvöldum verið í lófa lagið að byggja brýr þarna upp og taka þetta inn áður en að pakkinn var frágenginn. Við erum að enduróma áhyggjur oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, borgarstjóra Reykjavíkur, sem er formaður SSH. Við erum að enduróma áhyggjur fulltrúa stærstu sveitarfélaganna og Sambands íslenskra sveitarfélaga, þeirra sem ætla og vilja veita þessa þjónustu. Og það hlýtur að vera aðalatriðið að geta tryggt það að þjónustan verði veitt. En í ljósi þess að hér verður lögð fram, eins og ég tilkynnti áðan, þingsályktunartillaga um að undirbúningur hefjist á því að flytja málaflokkinn aftur til ríkisins (Forseti hringir.) til að tryggja fjármagn og tryggja þjónustuna, af því það er aðalatriði að þjónustan verði tryggð, þá vænti ég þess svo sannarlega allir verði (Forseti hringir.) með á því, því að það hlýtur að vera aðalatriðið. Það sparar þá líka alla kaffifundina (Forseti hringir.) með fulltrúum sveitarfélaga til að reyna mögulega að finna lausn síðar. Þess vegna segi ég já.