157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:24]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég verð nú að segja að ég er alveg undrandi á orðum bæði hv. þm. Sigurðar og hv. þm. Ingibjargar Isaksen. Ég ætla hins vegar ekki að láta það trufla mig neitt. Eins og sjálfsagt margir hér inni vita er ég búin að vinna með öldruðum til tuga ára og ég fullyrði að dýrin eru eitt besta lýðheilsumál aldraðra. Nú í dag er ég í sambandi við mjög mikið af þessu fólki mínu, félagsmönnum mínum sem voru hjá mér, og þegar ég spyr hvort þeir ætli ekki að fara að selja segir stór hluti þeirra: Nei, ég á mitt hús, ég get það ekki, ég drep ekki hundinn fyrir einhverjar íverur og til að minnka við sig húsnæði. Ég segi því já við þessu. Þetta er lýðheilsumál, sérstaklega fyrir aldraða og þá sem eru einmana.

(Forseti (): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa til annarra þingmanna með fullu nafni.)