157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:30]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er afar stolt yfir að eiga þátt í því hér í dag að allir geti notið þess að eiga gæludýr kjósi þeir það. Gæludýr hafa sennilega aldrei fyrr skipað jafn háan sess í lífi fólksins í landinu. Í nútímasamfélagi þar sem hraði, stress og áreiti er í sögulegum hæðum finnur fólk frið og ró með þessum vinum sínum og fjölskyldumeðlimum. Það er gott að hugsa til þess að þeir sem kjósa að búa í fjölbýli njóti þeirra sjálfsögðu mannréttinda jafnt og aðrir. Ég segi já.