157. löggjafarþing — 32. fundur, 12. nóv. 2025.
fjöleignarhús.
107. mál
Frú forseti. Þetta er gott frumvarp og löngu tímabært. Það tryggir að eigendur hunda og katta séu ekki fyrir fram útilokaðir frá tilteknum fasteignum. Maður á að vera frjáls að ráðstöfun sinnar eignar, svona nokkurn veginn. Engu að síður er gert ráð fyrir að hægt verði að taka á því ef alvarlegur heilsuvandi, ami eða skaði hlýst af dýrunum og eigendur þeirra gera ekki bragarbót á. Ég segi já.