157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:33]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Hæstv. forseti. Mér hefur lengi mislíkað þau ströngu lög og þær ströngu reglur sem við höfum á Íslandi, samanborið við víða annars staðar, gagnvart gæludýrum. Eins og hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á er þetta frelsismál, líka réttlætismál, að fólk hafi sama rétt til að halda gæludýr óháð því hvort það búi í fjölbýli eða sérbýli. Ég styð þetta mál. Ég segi mjá.