157. löggjafarþing — 32. fundur, 12. nóv. 2025.
fjöleignarhús.
107. mál
Virðulegur forseti. Ég segi líka mjá, og já. Mér finnst þetta skipta máli vegna þess að gæludýr, hundar og kettir, eru oft eins og fjölskyldumeðlimir hjá fólki. Það að takmarka í raun og veru búsetufrelsi gæludýra sem búa hjá þessum eigendum er auðvitað réttlætismál. Ég segi því já með gleði og telst þess fullviss að þeir varnaglar sem eru í frumvarpinu nægi til að koma í veg fyrir að fólk hljóti ama af, heldur eingöngu gleði af sínum gæludýrum.