157. löggjafarþing — 32. fundur, 12. nóv. 2025.
skattar, tollar og gjöld.
148. mál
Virðulegur forseti. Sem staðgengill talsmanns úr nefnd vil ég bara segja að nefndin telur að málið hafi verið nægilega vel unnið. Tekið var tillit til ýmissa athugasemda sem þar komu fram en að sjálfsögðu mun málið fara aftur inn til nefndar á milli 2. og 3. umræðu og verður þá bara farið enn frekar yfir það. Að mati okkar í meiri hluta nefndarinnar var málið fullunnið og tilbúið til þess að verða samþykkt sem lög.