almannatryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir fyrirspurnina en ég verð nú að viðurkenna að ég held að hún sé að rugla þessu saman við persónuafslátt sem átti að taka af fólki sem bjó erlendis. Ég hef aldrei nokkurn tímann þurft að velta vöngum yfir því sem hv. þingmaður nefnir hér. Það var fyrir tilstilli Flokks fólksins og baráttu minnar gegn því að persónuafsláttur yrði tekinn af fólki sem býr erlendis að það var ekki gert.
Hv. þingmaður segir að þetta sé búið að vera við lýði frá því að hún kom á þing. Jú, ég nefndi það í minni framsöguræðu. Árið 2020 var fyrst komið með þessa eingreiðslu og það var ekki síst vegna þess að það var ákveðinn Covid-stuðningur. Þetta var bara vont ástand og þess vegna þótti kannski eðlilegasti hlutur í heimi að jafnvel fella þessa greiðslu niður núna þegar annar Covid-stuðningur er smám saman að falla frá borði. Mér þótti afar mikilvægt að halda þessum greiðslum áfram þangað til því markmiði yrði náð að fólkið okkar fengi hér ekki minna en 450.000 kr. útborgað, enda finnst mér það í rauninni algjört lágmark. Þar tala ég af reynslu eftir að hafa búið í fátækt versus það að hafa nóg að bíta og brenna. Það er hafsjór þar á milli andlega og líkamlega. Ég veit að hv. þingmaður mun aðstoða okkur í því og róa að því öllum árum að við höldum áfram að taka utan um okkar minnstu bræður og systur.