157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[17:28]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Hún getur glaðst hvað það varðar að þrátt fyrir að lögin sem hún vísar til komi ekki að fullu til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2027 þá erum við að bæta 13 milljörðum inn í málaflokkinn núna 1. janúar 2026. Það verða 13 milljarðar sem fara í málaflokkinn núna 1. janúar 2026 og mun sannarlega muna um minna. Það sem verra er og okkar stóra verkefni er að ná utan um hátt í 50% elli- og örorkulífeyrisþega sem eru að fá útborgað minna en 450.000 kr. á mánuði. Hátt í 50% af þessum einstaklingum fá minna en 450.000 kr. á mánuði. Það er okkar stóra verkefni í dag að lyfta þeim upp. Við sáum það í fyrra þegar við greiddum eldra fólki sem eingöngu var á framfærslu almannatrygginga þessa jólaeingreiðslu, jólabónusinn svokallaða, að það voru ríflega 2.000 einstaklingar. Við vitum að þessir einstaklingar eru að stórum hluta til fullorðnar konur sem eiga engin lífeyrisréttindi. Það eru ömmur okkar og mömmur sem eiga ekki lífeyrisréttindi og við þurfum að taka sérstaklega utan um þennan hóp. Ég bara hlakka til að eiga gott samstarf við hv. þingmann hvað það varðar.