157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

237. mál
[17:48]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að ég geti í meginatriðum tekið undir þessa nálgun hv. þingmanns. Biðflokkurinn er mjög mikilvægur til að höggva á hnútinn og einmitt þess vegna kom ég hérna fyrr í vikunni inn með frumvarp sem hnykkir sérstaklega á því að það að það vanti gögn sé ekki eitthvað heilagt skilyrði fyrir því að einhverju sé raðað í biðflokk. Það getur einfaldlega verið afskaplega málefnaleg afstaða hjá fulltrúum á Alþingi eða ráðherra að svæði eða virkjunarkostur sé með þeim hætti að það sé hvorki tímabært að ákveða að þar skuli virkjað né að ákveða að viðkomandi svæði skuli friðlýst til allrar framtíðar. Hér erum við einmitt að tala um svæði, vatnasvið Héraðsvatna, sem hafa vissulega fengið hæstu einkunn þegar kemur að langflestum mælikvörðum hjá t.d. faghópi 1 í rammaáætlun. Þar er mikil líffræðileg fjölbreytni, þetta eru ómetanlegar landslagsheildir og hægt að færa mjög sterk rök fyrir því að þetta eigi heima í verndarflokki. En við erum að gera ákveðnar breytingar á lögum um rammaáætlun. Við erum að skýra betur hvað það nákvæmlega þýðir að eitthvað sé í verndarflokki. Við erum líka að móta atvinnustefnu og raforkuöflunarstefnu til framtíðar og á meðan þessi vinna stendur yfir þá tel ég út frá ákveðnum varfærnisjónarmiðum málefnalegt að halda þessum stóru vatnsaflskostum frekar í biðflokki. Það er ágætt að hafa það í huga að Alþingi hefur þegar tekið þá ákvörðun að flokka t.d. Skjálfandafljót og Jökulsá á Fjöllum í verndarflokk, þannig að ef Héraðsvötnin færu þangað líka væri í rauninni búið að setja alla stóru vatnsaflskostina á Norðurlandi í verndarflokk. Höfum það í huga að biðflokkurinn felur ekki í sér leyfi til að virkja. Þetta er hlutlaus flokkur og réttaráhrifin þau sömu og ef aldrei hefðu komið fram hugmyndir um að virkja þær. (Forseti hringir.) Ég held því að þetta sé skynsamleg nálgun að vera ekki feimin við að halda jafnvel virkjunarkostum sem fá hæstu einkunn út frá verndargildi í biðflokki.