varamenn taka þingsæti.
Mánudaginn 10. nóvember barst bréf frá Pawel Bartoszek um að hann yrði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Fimmtudaginn 13. nóvember tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir.
Einnig hafa borist bréf frá Ingibjörgu Isaksen og Sigmari Guðmundssyni um að þau verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi, Skúli Bragi Geirdal, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, og 3. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Ester Halldórsdóttir, en 1. og 2. varamaður á lista hafa boðað forföll.
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.