157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

lengd þingfundar.

[15:04]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er það fyrst og fremst til að sjá til þess að 5. dagskrármálið, þingmál nr. 257, um skatta og gjöld, frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, geti skilað sér til nefndar. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Ef ekki er óskað eftir atkvæðagreiðslu lítur forseti svo á að heimilt sé að halda þingfund lengur en þingsköp leyfa.