trygging grunnþjónustu.
Frú forseti. Ég legg áherslu á að þessar umræddu breytingar, sem eru einn angi af því sem hv. þingmaður ræðir hér um á framhaldsskólakerfinu, eru núna til umræðu hringinn í kringum landið og snúa ekki að því að búa til eina svæðisskrifstofu heldur nokkrar til að efla þetta stig. Við sjáum hvað kemur út úr þeirri vinnu. Ég verð hins vegar að segja að mér finnst skipta máli að við snúum ekki út úr þeirri umræðu. Það að það verði breytingar á stofnunum hringinn í kringum landið þýðir ekki að verið sé að veikja þær. Það að halda í horfinu og verja bara kannski í einhverjum tilvikum eldri tegundir starfa í staðinn fyrir að sækja fram er heldur ekki landsbyggðinni til framdráttar. Þessi ríkisstjórn hefur gert mjög metnaðarfull plön um t.d. að styrkja orkukerfið í landinu. Síðast í þarsíðustu viku var hæstv. orkumálaráðherra að kynna tengingar á norðausturhorninu sem hafa ekki sést í áraraðir, áratugi. Við erum búin að leggja fram viljayfirlýsingu um að styrkja stöðuna á Grundartanga með því að fara í öflugri stóriðju þar á sviði nýrrar tækni. Við höfum líka talað um atvinnustefnu sem gerir fólki kleift að sækja vinnu í byggðarlögum hringinn í kringum landið þannig að það þarf meira að koma til en bara að flytja störf. En við erum ekki að flytja störf hingað í bæ. (Forseti hringir.) Við erum að auka fjölbreytni starfa, forseti.