157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

bráðaaðgerðir í húsnæðismálum.

[15:17]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða fyrirspurn. Ég tek undir flest það sem hann segir hvað lýtur að því að við þurfum náttúrlega að byggja meira, byggja hraðar. Þessi ríkisstjórn kom með mjög metnaðarfullan fyrsta húsnæðispakka. Ég get ekki tekið undir að það að ætla að fara að setja strax um 13 milljarða kr. á árinu 2026 í að reyna að koma betur til móts við fyrstu kaupendur og efnaminni fjölskyldur þar sem ríkið er beinlínis að aðstoða fólk við að kaupa sér þak yfir höfuðið, sé ekki metnaðarfull aðgerð. Fyrir utan stofnframlög og hlutdeildarlán vorum við líka með aðgerðir gegn þessari svokölluðu Airbnb-þjónustu. Í ráðuneytinu mínu er verið að vinna að mjög metnaðarfullri vinnustofu sem haldin verður 4. desember næstkomandi, vinnustofu númer tvö, einmitt um húsnæðisuppbygginguna og það innlegg sem fundurinn mun sameiginlega ræða varðandi húsnæðispakka númer tvö. Við þurfum að ráðast í fljótvirkar aðgerðir, það liggur algerlega fyrir. Við getum ekki beðið í mörg ár eftir því. Þess vegna mun t.d. í pakka númer tvö verða litið til lóða ríkisins og eigna ríkisins sem hugsanlega er hægt að nýta til hraðari og öruggari uppbyggingar.

Ég tek undir með hv. þingmanni að það er dapurleg leið sem við höfum séð svo ekki verður á móti mælt, sú stefna sem hefur verið rekin hér í anda fyrri ríkisstjórna að reyna að koma okkur öllum helst á leigumarkað, það er alveg staðreynd. Þessi ríkisstjórn er að snúa þessu við. Við ætlum að hækka hlutdeildarlánin, við erum að fara að taka utan um fólk sem er efnaminna og fyrstu kaupendur. Ég hlakka til þegar það hefur náð fram að ganga. Í þessum töluðu orðum er einmitt að koma frá mér frumvarp um mjög svo miklar og góðar breytingar sem eru samdar í samráði sérfræðinga míns ráðuneytis og fulltrúa Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um það hvernig við getum enn frekar stutt við og hjálpað fólki að eignast eigið þak yfir höfuðið.