157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

bráðaaðgerðir í húsnæðismálum.

[15:21]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Ég get ekki tekið undir með hv. þingmanni, ég bara get ekki gert það. Ég get ekki séð að það sé slæmt að reyna að draga úr ívilnun og koma í veg fyrir að fjárfestar séu að fjárfesta í steinsteypu hér og geti í rauninni í krafti stærðar sinnar söðlað undir sig nánast allan byggingarmarkaðinn á landinu í dag. Ég get ekki tekið undir það að með því að koma í veg fyrir að einstaklingar séu hér með margar íbúðir í leigu og hreinlega kaupi upp heilu og hálfu blokkirnar til að leigja þær út — ég get ekki séð að það að slökkva á ívilnunum að einhverju leyti hvað það varðar muni hækka leiguverð. Vegna þess að á móti erum við að fara að byggja upp mjög metnaðarfullar og koma af stað mjög metnaðarfullum aðgerðum hvað lýtur að þúsundum íbúða sem við ætlum að setja inn á markaðinn. Við erum að fara að hagræða og við erum að bæta og breyta. Við erum að opna fyrir ýmislegt og ég hlakka til að kynna það betur fyrir þingheimi þegar ég legg það fyrir þingið hvernig við raunverulega erum að breyta kerfinu okkar til lengri tíma. Við erum bara tíu mánaða ríkisstjórn og mér finnst í rauninni barnið okkar vera að vaxa mjög vel úr grasi. Allt það sem við höfum verið að gera er í þágu þjóðarinnar (Forseti hringir.) eins og hún leggur sig og við höldumst þétt í hendur. Við styðjum hvert annað í þessari ríkisstjórn og áfram veginn og ég bara ætlast til þess sama (Forseti hringir.) af hv. þingheimi sem okkur þykir öllum jafn vænt um.