markmið um losun gróðurhúsalofttegunda.
Forseti. Hér var verið að ræða um atvinnustefnu. Þetta eru drög að atvinnustefnu sem eru enn þá í samráði, mér finnst mikilvægt að það komi fram. Við höfum verið að vinna þessa stefnu í mjög nánu samráði bæði við þessa klassísku hagaðila en við höfum líka fengið umsagnir frá almenningi. Það kann að vera að á þessum tímapunkti hljómi þetta eins og orðasalat en núna erum við að leggja línurnar með breiðum hætti svo við getum fengið þá aðila inn sem eru með þekkingu. Við erum að móta aðgerðirnar með hagaðilum og almenningi og ætlum að vera með mjög konkret aðgerðir þegar að því kemur. Reyndar tel ég að þeir sem hafa í sumum tilvikum gagnrýnt atvinnustefnuna hafi einmitt verið að gagnrýna það að við séum að hafa allt of konkret skoðanir á því með hvaða hætti á að reka atvinnulíf hér á landi.
Þegar kemur að loftslagsmálum eins og þau snúa að atvinnustefnunni þá höfum við tekið það skýrt fram, alveg eins og hæstv. loftslagsráðherra, að það stendur yfir ákveðin tiltekt í loftslagsmálum hjá okkur. Við viljum að það sé alveg á hreinu hvaða markmiðum við erum að vinna eftir. En það breytir því ekki að ef þú lítur bara í kringum þig og til stærstu þjóða heims þá er mikil samkeppni í dag um að taka þátt í grænum iðnaði og grænum lausnum. Það þarf ekki annað en að líta bara til Kína t.d. Þar er ofboðslega mikið lagt upp úr því að vera með forskot þegar kemur að loftslagsmálum, þannig að þetta eru ekki bara orð á blaði, það eru líka ákveðin atvinnutækifæri sem þessu fylgja eins og sást bara í síðustu viku þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var að skrifa undir viljayfirlýsingu um það sem hann kallar Stóriðjustefnu 2,0, þar sem við erum að reyna að tryggja það að við verðum áfram með loftslagsvæna stefnu.
Varðandi hvort þetta séu raunhæf markmið þá veit ég að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur legið yfir þessum markmiðum einmitt til þess að taka til og vera viss um að við getum sannarlega staðið við þau markmið sem við skrifuðum undir. Það er ekkert meira um það að segja á þessum tímapunkti. Það breytir því ekki að auðvitað er þetta ekkert sjálfsagt og auðvelt en við þurfum að fá atvinnulífið líka með okkur.