útlendingamál og umborin dvöl.
Frú forseti. Ég fundaði nú með danska ráðherra útlendingamála fyrir nokkrum vikum síðan. Hann er nýr, hefur setið nokkrar vikur í embætti. Varðandi það að stöðva umsóknir til fimm ára, þá er það önnur hugmynd sem er öll á yfirborðinu. Allir sem málin skoða vita að hún er óframkvæmanleg og myndi í óbreyttu regluverki á Íslandi þýða það að allt þetta fólk fengi að endingu leyfi á Íslandi því að þegar umsókn hefur beðið í 18 mánuði þá fá allir dvalarleyfi samkvæmt því regluverki sem síðasta ríkisstjórn skilaði af sér. Það yrði þá afleiðing af stefnu Miðflokksins; 100% jákvæð svör.
Hv. þingmaður nefnir við mig að ef mér væri alvara væri ég tilbúin að skoða allar leiðir. Ríkisstjórnin er að skoða samræmi við Norðurlöndin öll. Ég er með fimm frumvörp á þingmálaskránni og þær aðgerðir sem hann talar um í Bretlandi snúast ekki um það sem hér er verið að ræða um, afturköllun á alþjóðlegri vernd. Mér finnst það vera ákveðið lán að við séum komin á þann stað hér á þingi, flestir flokkar, að geta rætt þessi mál af skynsemi, af yfirvegun, með tvö markmið að leiðarljósi; að sýna mannúð gagnvart fólki sem er að koma úr ömurlegum og erfiðum aðstæðum (Forseti hringir.) og fær hér alþjóðlega vernd og erum jafnframt ábyrg og skilvirk í því þegar við ætlum ekki að taka á móti fólki. En við erum tengd í jörðu (Forseti hringir.) og við erum ekki bara í efsta stigs yfirlýsingum um allt sem er hægt og kemur síðan á daginn að er ekki hægt að gera í anda Miðflokksins.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að virða tímamörk.)