157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[17:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir spurninguna. Það hefur farið fram greining á umfanginu og það lætur nærri að um 20% af leiguhúsnæði heyri undir þetta frítekjumark vegna tekna af leigu. Það er líklegt að þetta leiði til einhvers þrýstings til hækkana. En ef hægt er að gefa sér, sem eru auðvitað bara forsendur, að upphæðin í heild sinni komi til hækkunar þá er það nú samt þannig, vegna þess að þetta nær einungis til lítils hluta markaðarins, að t.d. kostnaður vegna leiguhúsnæðis hækkar um töluvert minni upphæð. Matið á áhrifum á vísitölu neysluverðs er hækkun sem er einhvers staðar á bilinu 0,1–0,3%.