skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir alveg ljómandi góða spurningu og mjög góða ábendingu varðandi þau skattfríðindi sem við erum að ræða hér og breytingar á þeim, sem er nákvæmlega það að einstaklingar sem reka húsnæði reka það ekki á sömu forsendum og fyrirtæki myndi gera, þ.e. geta ekki talið kostnað á móti tekjum á sama hátt og fyrirtæki geta gert. Það er í sjálfu sér alveg rétt að hluta af skýringunni á þessu fyrirkomulagi má sennilega leita þangað. En í ljósi þess hversu auðvelt það er að færa rekstur yfir í lögaðila þá verður það einfaldlega koma í ljós. Það á ekki að vera þannig að skattkerfið hygli einhverju sérstöku fyrirkomulagi frekar en öðru og það er miklu eðlilegra að það sé einfaldlega á grundvelli markaðsforsenda sem fólk velur atvinnustarfsemi sinni umgjörð.