skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Almennt má segja að það hvort skynsamlegt sé fyrir hið opinbera að fjármagna nauðsynlega samneyslu með lægri sköttum og minni ríkisumsvifum eða aukinni skattbyrði og opinberu valdboði sé sígrænt og vinsælt deilumál stjórnmálanna. Sennilega er borin von að vinstri og hægri nái alveg saman í þeim efnum á næstunni. Það er augljóst í hvaða átt núverandi ríkisstjórn kýs að halla sér í þeim efnum, því miður. Skattatillögur þær sem við höfum fengið að sjá ofan í á undanförnum vikum og mánuðum jafnvel — þó að ríkisstjórnin vilji aldrei kannast við að um skattahækkanir sé að ræða heldur einhvers konar leiðréttingar, eða fylla í skatta og glufur, eða jafna út kerfið, eða taka út frávik, eða hvað eina sem það er kallað hverju sinni — bera því miður allar að sama brunni; það á að gera atvinnulífinu erfiðara fyrir heldur en ekki. Því miður er þess virði að spyrja að leikslokum hvað það varðar.
Það breytir því ekki að ríkisstjórnin lofaði fyrir tæpu ári síðan að vinna að aukinni verðmætasköpun og ætlaði að sjálfsögðu að negla niður vexti og verðbólgu — við vitum hvernig það gengur — en það sem ég ætla að staldra sérstaklega við hér er að þau lofuðu að gera eingöngu skynsamlegar skattabreytingar og án þess að hækka skatta á venjulegt fólk, eins og hefur verið ítrekað. Annað hefur því miður komið á daginn og er hægt að sjá merki þess í því frumvarpi sem við ræðum hér í dag að einhverju leyti.
Til að fara hérna aðeins almennt yfir þá vitum við auðvitað að ríkisstjórnin hefur þegar hækkað skatta á eina undirstöðuatvinnugrein með neikvæðum afleiðingum víða um land. Það er ekki bara í sjávarútveginum sem blikur eru á lofti. Það sjá allir höggið sem fall flugfélagsins Play mun vera fyrir íslenska ferðaþjónustu sem þegar á í vök að verjast í harðri alþjóðlegri samkeppni og getur ekki verið örugg um að hennar umhverfi verði enn verra eftir því sem ríkisstjórnin leggur til fleiri og frekari plön.
Þá hefur erfið staða á Grundartanga, sem er þó vonandi einungis tímabundin, valdið mikilli óvissu og kostnaði í töpuðum útflutningsverðmætum. En þar sem það er sígrænt deiluefni stjórnmálanna í hvora áttina sé best að halla sér í aðstæðum sem þessum þá er það því miður svo að ríkisstjórnin kýs að halla sér í áttina að frekari sköttum og auknum ríkisumsvifum. Á meðan þessi óveðursský hrannast upp heldur ríkisstjórnin ótrauð áfram í sínum plönum. Til að nefna nokkur atriði þá á að hækka vörugjöld á ökutæki, sem hækkar verð og bitnar á fjölskyldum í landinu og fyrirtækjum, fjölskyldum sem ég myndi halda að væru svona að uppistöðu til venjulegt fólk. Það á að leggja sérstakt náttúru- og innviðagjald á hvern þann sem hyggst heimsækja ferðamannastað í eigu ríkisins. Það á að innheimta sérstakan menningarskatt af streymisveitum, þótt það sé kallað eitthvað allt annað eins og fyrri daginn, menningarframlag minnir mig, og taka upp kílómetragjald á ökutæki.
Ríkisstjórnin gerði svo mikið úr svokölluðum húsnæðispakka á dögunum. Það er ástæðulaust að gera lítið úr þeim jákvæðu tíðindum sem leyndust í þeim pakka. Fyrst má nefna sinnaskipti ríkisstjórnarinnar varðandi skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán, mál sem á rætur sínar að rekja til landsfundar Sjálfstæðisflokksins árið 2013 og Bjarni Benediktsson innleiddi sem fjármálaráðherra. Fyrir aðeins tveimur mánuðum þótti ríkisstjórninni slíkt einungis fela í sér tapaðar tekjur fyrir ríkissjóð en hefur nú snúist hugur og er það vel. Úrræðið hefur enda nýst ófáum til að eignast meira hraðar í eigin húsnæði og létt undir greiðslubyrði heimila svo um munar.
Gallinn er hins vegar sá að margir hafa nú þegar nýtt sér úrræðið í þau tíu ár og ríkisstjórnin hefur ekki ljáð máls á því að lengja þar í til að mæta þessum stóra og ört stækkandi hóp, þrátt fyrir að gangast heils hugar við því að þetta sé langbesta leiðin sem til er til að fjármagna eigin íbúða- og húsnæðiskaup. Varanlega framlengingin sem ríkisstjórnin boðar er því í reynd engin, svo ég get best séð, og ætti kannski frekar að tala um húsnæðisblöff þessa húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar í því samhengi.
Eins og ríkisstjórninni er því miður lagið má að sjálfsögðu finna skattahækkanir í þeim pakka undir formerkjum þess að loka eigi glufum og gloppum og einfalda kerfið eða afnema útúrdúra eða hvernig svo sem það er orðað, nú man ég það ekki alveg svo glöggt, ég biðst afsökunar á því, frú forseti. En eina slíka skattahækkun er að finna í því frumvarpi sem hér er til umræðu í dag. Það heitir, á kannski örlítið flóknu kerfismáli, að frítekjumark tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 50% í 25%. Það þýðir í raun að virk skattbyrði leigutekna mun hækka úr 11%, eins og er í dag, í 16,5%.
Í andsvörum hér rétt áðan spurði ég hæstv. ráðherra hvort hann teldi líklegt að þessi hækkun myndi hækka leiguverð. Svarið var býsna heiðarlegt um að það væri líkleg afleiðing. Þó að leigusölum sé engin vorkunn með því að geta í rauninni ýtt þessari skattahækkun út í verðlagið þá er auðvitað hugur okkar hjá þeim leigjendum sem þurfa núna að borga hærra leiguverð. Það má spyrja sig hvort þessir um 1,5 milljarðar sem tekjuáhrif þessarar breytingar eiga að ná fram séu þess virði að rugga bátnum á leigumarkaðnum eins og raun ber vitni.
Hér skiptir líka máli að hafa í huga að hér er ekki um að ræða þá risastóru aðila, leigufélög sem eru með fjölda íbúða til útleigu. Þetta eru fyrst og fremst einstaklingar, einyrkjar, sem af einhverjum ástæðum eru með aukafasteign til umráða sem vilja í staðinn fyrir að selja hana eða láta hana standa auða gjarnan hafa hana í útleigu. Öll svona inngrip rugga þeim bát, það segir sig sjálft. Það má velta upp af hverju ríkisstjórninni í þessu samhengi finnist ekki jákvætt og vilji hafa hvata til þess að einstaklingar sjái hag sinn í því að verja fjármunum í fasteign svo leiguíbúðir séu yfir höfuð í boði.
Það má kannski fylgja með hér, frú forseti, að í sögulegu samhengi eftir síðustu vinstri stjórn í landsmálunum hérna á árunum eftir hrun var einmitt gripið til ekki nákvæmlega sömu aðgerða en aukin skattbyrði var sett á tekjur af leigu. Það gerði auðvitað allt annað en það sem það átti að gera. Það var ekki fyrr en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kom fram með þetta frítekjumark fjármagnstekjuskatts af leigutekjum einstaklinga í 50% sem bæði framboð af leiguíbúðum fór að aukast og leigan fór að vera á eðlilegri stað.
Ég hef því áhyggjur af þessari breytingu, algjörlega sama hvernig ríkisstjórnin kýs að orða það og hvaða nöfnum hún vill kalla þetta, hvort þetta sé réttlæti eða leiðrétting eða að fylla upp í glufur eða afnema undantekningar eða hvað svo sem það er. Það breytir því ekki að hér er verið að hækka skatta á leigutekjur og það er algerlega einsýnt að það mun einfaldlega hækka leiguverð.
Það má öllum vera ljóst að almennt greiðir maður ekki götu uppbyggingar með svona aðgerðum, þvert á móti. Þær æfingar gætu jafnvel fækkað því leiguhúsnæði sem er í boði, þvert á yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar. Eins og segir í greinargerð frumvarpsins, að þó að það sé líklegt að svona breytingar valdi því að leiguverð hækki þá sé það að sjálfsögðu í samhengi við eftirspurn og framboð á markaði, þannig að ef framboðið er mikið verði ekki hægt að hækka verð jafn mikið o.s.frv. Þetta er auðvitað hagfræði þessa markaðar í grunninn sem við þekkjum nú held ég flest.
Ég verð þá að velta því upp, frú forseti, og spyrja: Af hverju bíður ekki ríkisstjórnin með svona aðgerðir þar til hún getur verið fullviss um að það sé nægilegt framboð af húsnæði á markaðnum til þess að leigusalar ættu erfiðara en ekki með það að hækka leiguna sisvona? Ég vona að við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd tökum þetta til svolítið alvarlegrar skoðunar. Hér undir er mikið kerfi ákveðins jafnvægis sem skiptir máli og ekki síst þeirra sem oft eru ekki kannski í einföldustu eða auðveldustu aðstæðunum í samfélaginu, sem eru þeir sem eru á leigumarkaði.
Forseti. Þrátt fyrir einstaka jákvæð atriði í því frumvarpi sem hér um ræðir, eins og að skattfrádráttur vegna hlutabréfakaupa verði framlengdur, sem er mjög jákvætt, og að frítekjumark barna verði hækkað í 300.000 kr., sem einnig er jákvætt — og ég hlustaði af athygli á orðaskipti hv. þm. Sigríðar Á. Andersen og hæstv. ráðherra hér áðan um að kannski gæti talan verið enn hærri og er eitthvað sem nefndin mun taka til skoðunar — þá er, frú forseti, ekkert í þessum tillögum ríkisstjórnarinnar almennt, eins og ég hef reifað hér, sem er að létta undir með atvinnulífinu, rjúfa kyrrstöðu eða vinna í átt að aukinni verðmætasköpun. Engin af þessum tillögum sem hér um ræðir og ríkisstjórnin hefur verið að leggja á borð vinnur í átt að aukinni verðmætasköpun.
Ef ætlunin er hjá hæstv. ríkisstjórn að einblína áfram á einstaka skattabrellur, sem eiga að skila einhverjum nokkrum fleiri aurum í ríkiskassann, í stað þess að skapa einfaldlega gott umhverfi svo fólk og fyrirtæki geti plumað sig sjálf í okkar ágæta samfélagi, er réttmætt að spyrja hver standi vörð um lífsgæðin og velferðina í landinu. Ekkert í okkar góða samfélagi væri hægt nema með öflugu, stöndugu og samkeppnishæfu atvinnulífi.