157. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[18:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir alveg ljómandi góða yfirferð. Ég get tekið undir þau orð hans sem snúa að mikilvægi þess að efnahags- og viðskiptanefnd vandi vinnu sína. Mig langar til að bjóða upp á það við hv. þingmann að eiga orðastað við mig varðandi heimildir Náttúruhamfaratryggingar. Ég held að þarna sé um mjög mikilvægt mál að ræða sem er mjög mikilvægt að þingheimur sé meðvitaður um. Nú dylst engum að umtalsverðar hamfarir hafa dunið yfir Ísland á undangengnum árum og hvað varðar náttúruhamfaratryggingar vega eldsumbrotin við Grindavík langsamlega þyngst. Á sama tíma er það líka að gerast í heiminum að vegna breytinga á loftslagi er vátryggingarbyrði almennt að þyngjast. Hv. þingmaður bendir réttilega á, og vitnar þar m.a. í umsagnir, að um sé að ræða samtryggingakerfi sem Íslendingar hafi komið sér upp, og ég held mjög skynsamlega, til þess að geta betur tekist á við þá ógn sem steðjar að nábýli okkar við náttúruna.

Mig langar til að taka sérstaklega fram að brugðist var við athugasemdum þessara aðila með því að setja mörk inn í lögin um 5% af heildargreiðsluskyldu Náttúruhamfaratryggingar. Við þurfum hins vegar að horfast í augu við það að á Íslandi eru fá mjög stór fyrirtæki sem eru þannig að umfangi og eignum að það er alls ekki ljóst að Náttúruhamfaratrygging gæti sinnt hlutverki sínu ef til altjóns slíks aðila kæmi. Þess vegna þurfum við að taka meðvitaða umræðu um það hér í þingsal hvort við eigum frekar að fara í endurskoðun kerfisins í heild sinni eða setja einhver mörk fyrir hvers konar tjón Náttúruhamfaratrygging getur tryggt, (Forseti hringir.) einfaldlega vegna takmarkaðs umfangs.