157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:35]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur að kalla saman þann fund sem hún óskaði eftir. En svona fór þetta; ESB er búið að brjóta EES-samninginn á meðan við forðumst ítrekað að nýta þau ákvæði sem samningurinn býður upp á. Nú hlýtur allt tal um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu að vera búið, annað væri alveg út í hött miðað við þessar aðstæður. Ef einhverjum dettur í hug að ætla að samþykkja bókun 35 úr þessu þá veit ég ekki hvar Alþingi Íslendinga er statt.