157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:40]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég tek undir með þeim ræðumönnum sem hér hafa verið að vekja máls á þessu alvarlega máli, þ.e. að samningsaðili okkar hvað varðar samninginn um Evrópska efnahagssvæðið hefur brotið þennan samning á okkur. Þá kemur í ljós, frú forseti, hversu afskaplega litlu máli við skiptum í augum Evrópusambandsins. Þetta kom líka í ljós hérna fyrir 15 árum þegar við börðumst um á hæl og hnakka vegna Icesave-samninganna, þá kom í ljós hversu litlu máli hagsmunir Íslands skipta í Evrópu. Það hefur komið í ljós núna aftur að þeim munar ekkert um að brjóta þennan samning á okkur ef það þjónar þeirra hagsmunum og horfa ekkert á það, þó það hafi tekið tvo, þrjá daga, einhvers konar umhugsunarfrestur að kröfu hugsanlega íslenskra og norskra stjórnvalda, það skipti í raun engu máli. (Forseti hringir.) Við þurfum auðvitað að efla samstarf við sem flestar þjóðir í kringum okkur, Evrópusambandið, Bretland, Kanada (Forseti hringir.) og Bandaríkin og senda út skilaboð í allar áttir að við vinnum með öllum. Við erum ekki að binda okkur við eitt vegna þess að þegar upp er staðið þá skiptum (Forseti hringir.) við afskaplega litlu máli í stóra samhenginu. Við erum svipuð Grímsey í stóra samhenginu við Ísland, eins og Ísland í samhengi við Evrópusambandið.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)