157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við erum núna að upplifa stríð á milli stórra blokka sem hófst í Bandaríkjunum. Ég upplifði ekki þessi viðbrögð af hálfu Miðflokksins þá þegar hér voru settir á okkur tollar af hálfu Bandaríkjamanna sem við töldum að væru nú á meðal okkar bestu og mestu vinaþjóða. En þar fyrir utan er þetta grafalvarlegt mál. Við erum bara lítið peð að lenda á milli þegar stórar blokkir eru að berjast. Það sem skiptir máli núna er að við verðum inni í blokkinni, ekki fyrir utan hana. Við höfum engin áhrif fyrir utan hana. Hvað ætlum við að gera? Ætlum við að fara að setja verndartolla á Bandaríkin? Eða verndartolla á Evrópu? Eða verndartolla á Kína? Hvað ætlum við að gera? Við þurfum að koma okkur fyrir inni í blokk þar sem við verðum varin og við erum algjörlega óvarin núna.