157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:44]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er ljóst að tíðindi morgunsins voru mikil vonbrigði. Ég held að það eigi við okkur öll sem hér erum inni og deilum þeirri skoðun. Að mínu viti er þetta skýrt brot á samningnum sem við héldum að við værum með til að tryggja okkar hagsmuni, íslenska hagsmuni, að vera inni í blokkinni. Ég hélt að við værum inni í blokkinni. Við erum það ekki. Við erum ekki í þessari blokk, virðulegur forseti.

Það er ekkert óeðlilegt að Evrópusambandið verndi sína hagsmuni eða að Bandaríkin verndi sína hagsmuni eða Kína verndi sína hagsmuni en það þurfum við Íslendingar að gera núna. Við þurfum að vernda okkar hagsmuni. Við þurfum að stíga fast til jarðar og ég veit að hæstv. utanríkisráðherra er búin að standa mjög þétt í þessu máli og ég ætla bara að hæla henni þrátt fyrir að niðurstaðan sé okkur óhagfelld. (Forseti hringir.)

Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, við erum að fara að ræða hér á eftir og greiða atkvæði um evrópska fjárfestingarsjóði, (Forseti hringir.) sem er EES-innleiðingarmál. Hvað ætlar þingið að gera? Ætlum við að staldra við eða ætlum við að halda áfram að innleiða hér EES-reglugerðir (Forseti hringir.) eins og ekkert hafi í skorist?