verndartollar ESB á kísilmálm.
Frú forseti. Þetta er að mörgu leyti fyrirsjáanleg umræða sem við eigum hér í dag. Ég held að við þurfum kannski að staldra við og átta okkur á því að kannski er heimurinn bara svolítið að breytast fyrir framan augun á okkur. Hagsmunirnir eru að breytast og hagsmunamatið sömuleiðis. Við erum með stórveldi sem eru í tollastríði og við erum einhvern veginn að klemmast þar á milli og það er ekki góð staða. Það eru vonbrigði að málið hafi farið eins og það fór í dag. En íslensk hagsmunagæsla hefur verið sterk og við megum vera stolt af henni. Það hefur Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, m.a. sagt í fjölmiðlum. Það er kannski ekkert sem við gátum gert frekar en að berjast með kjafti og klóm fyrir okkar hagsmunum. En við hljótum líka að staldra við og spyrja okkur: Hvar er okkar hagsmunum best borgið? Ég vil líka í þessu ljósi að minna á það að 70% af okkar útflutningi eru innan EES og ég kalla eftir ábyrgð þegar við tölum um þennan samning sem skiptir okkur og okkar atvinnulíf öllu máli, að við séum ekki hér að tala um eitthvert frost og tala um að hunsa þennan samning í þessum sal vegna þess að hagsmunir alls samfélagsins eru meiri en svo.